Saturday, April 9, 2011

Þar sem siglt er yfir til Lídó og hjólað um eyjuna

Sunnudagur. Sigldum með ferju númer eitt (sem fer á heila tólf staði við Grand Canal, niður á Markúsartorg og svo yfir á Lidó. Mjög hressandi sjávarloft. Skrítið að sjá bíla aftur. Settumst niður á kaffihúsi í sólinni og sáum þá reiðhjólaleigu. Ákváðum med det samme að hjóla yfir á ströndina. Afgreiðslumaðurinn á kaffihúsinu sparaði orkuna til hins ítrasta. Ekki það að hann hafi komið of seint með bjórinn eða verið á neinn hátt lélegur þjónn; hann gerði allt bara þannig að það kostaði hann sem minnsta umfram orku. Eins og B sagði þá var hann líklega gamall glamúrgaur sem hafði verið að djamma á Lídó og annað hvort gifst eiganda matsölustaðarins eða unnið hann í spilum. Við hjóluðum niður á strönd og B skellti sér örlítið í Adríahafið. Við fengum okkur bjór á bikerbar við ströndina og tókum síðan ferjuna til baka. Um kvöldið borðuðum við á sama stað og við höfðum borðað á fyrsta kvöldið - þar réðst ólíva á B; förum síðan í göngutúr og rákumst á hverfi sem við höfðum ekki kannað áður; síðan lentum við inni á torgi sem við höfðum séð áður en A hafði haldið að það héti Giovanni e Paulo en það hét St. Maria Formosa. Dularfullt.





Með ferju númer eitt








Lídó
























Stundum dugar ekki ein

Meeting Mr. Flowers in San Marco


Áður en ólívan gerði árás

Á antipasto-veiðum



No comments:

Post a Comment